2020 Leiðir og kennslan mín

2020 Leiðir og kennslan mín

Jun 18, 2021

Heyjó. Takk fyrri að kíkja í heimsókn. Mig langar aðeins að segja þér frá því sem ég hef verið að gera því kannski viltu taka þátt í því með mér. Ég hef verið að kenna á gítar í mjög langan tíma og hef verið að gera það í gegnum netið eingöngu síðan 2018. Í mars árið 2020 ákvað ég að gera þætti um gítarleikara fyrir gítarleikara og fengu þeir nafnið 2020 Leiðir. Þú getur séð upphafið að þeim í viðtalinu við Rubin Pollock. Það fer heilmikill tími í gerð þáttana og stundum veltir maður því fyrir sér hvers vegna maður sé að nota allan þennan tíma í þetta. Ástæðan er einföld. Ég læri ótrúlega mikið á að gera þetta og svo er þetta mjög skemmtilegt.

Ég blogga svolítið á heimasíðunni minni www.jonkarason.is/blog og ég hef stundum skrifað um að engin nenni að horfa,hlusta eða lesa það sem þú gerir. Það er mikið til í því en stundum kíkir einhver við og horfir. Þá vilja menn stundum segja takk. Með þessari síðu gef ég þér tækifæri á að segja "Takk fyrir að nenna að standa í þessu. Ég hef gaman af"

Enjoy this post?

Buy 2020 Leidir - Jon H Karason a coffee